Leita í fréttum mbl.is

Og enn hann heldur áfram..

Það var sem ég spáði.. Ég á mér EINN dyggan lesanda.

Framtakssemi vikunnar var ekki meiri en svo að mér tókst að gera við svalahurðina en lét svo þar við liggja. Ég fór hinsvegar í gegnum toppsætið á DVD safninu mínu og prufukeyrði einnig nýja diska sem og að horfa á Freddy Mercury og þá drottningarfélaga lifandi á sviði á Wembley frá árinu 1986.

 Ég er smám saman að uppgötva einhverskonar nostalgískan unað af því að horfa á myndir sem eiga tengingu við miðaldir. Braveheart var á áhorfslistanum um helgina sem og Hringadrottinssaga. Ég veit ekki hvað það er en það er ekki laust við að maður fyllist eldmóði af að horfa á svona myndir. Alveg er ég viss um að ég hafi eitthvað þekkt til íslensku raunvíkinganna úr íslendingasögunum í einhverju fyrra lífi.

G. Reykjalin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fyrst þú ert eitthvað að gramsa í DvD safninu þínu þá mæli með því að raða DVD myndunum í stafrófsröð.

Þá er auðveldara að finna myndirnar þegar þig langar að horfa á ákveðna mynd. Svínvirkar hjá okkur allavega :) 

Margir hafa komið í heimsókn og hlegið af þessu, en svo þegar ég fer í heimsókn til sama aðila þá hefur komið fyrir að sá hinn sami er líka buinn að raða öllu í röð !!   hehe

Kv

Linda

Linda (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 12:54

2 Smámynd: G. Reykjalín

Já.. Katrín raðaði þessu í stafrófsröð daginn sem við fórum að vera saman svo að ég er góðu vanur.. :)

G. Reykjalín, 24.11.2008 kl. 14:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband