Leita í fréttum mbl.is

Check, one, two .. anybody home?

Útvarpsmenn, síhrapandi starfsgrein eða nýr vettvangur óskólagenginna fullorðinsbarna?

Svo virðist sem kröfur í vali á starfsfólki útvarpsstöðva hafi breyst allverulega undanfarin ár. Hér á árdögum útvarpsins voru hæfniskröfur þeirra sem áttu að mala yfir langbylgjuna oftar en ekki fremur kjánalegar. Gjarnan var farið eftir landsfjórðungum þegar velja átti starfsfólk og var því skipt niður í flokka eftir framburði. Þeir sem komu að norðan voru eftirsóttastir og þar af leiðandi efstir í fæðukeðju útvörpunar, ef svo má að orði komast. Vottur af harðmæli var merki um tign og fágun.

Ef eitthvað mark er að taka á vali útvarpsstöðvanna nú til dags kemur það greinilega fram að harðmæli er munaðarvara sem fyrirfinnst ekki lengur og það sama virðist einnig gilda um skólapróf. Það er spurning hvort ráðningastjórinn sitji hugsi við skrifborðið sitt á meðan heilaskertir umsækjendurnir rembast við að koma út úr sér heilstæðum setningum. Sá sem svo getur ælt út úr sér lengstu setningunni (sem ég geri ráð fyrir að sé þá svona 5 - 7 orð) er ráðinn.

Einhver þyrfti að taka sig til og benda útvarpsmönnum á að ef maður kann ekki orðatiltækið er best að reyna ekkert að koma því út úr sér. Hvaða heilvita maður lætur út úr sér svona setningar? "Heyrðu, þá kom sko pabbi í bátinn", "Ég bölvaði honum með sandöskri" og "ég beit bara í súrt epli þegar ég sá að þetta var vitlaust". Einn útvarpsmaður lét þetta út úr sér um daginn: "Fólk sem býr í steinhúsi á ekki að kasta glerjum".Shocking

Ein og ein mistök eiga kannski rétt á sér, en þegar þetta er orðið daglegur atburður er spurning að snúa sér að einhverju öðru.

Annað sem útvarpsmenn eiga til er að rökræða hluti sem þeir vita ekkert um. Morgunþáttastjórnendur FM957 voru að ræða um egglos kvenna um daginn og einn útvarpsmannanna hélt því fram að konur væru með eitt egg og framleiddu ekki fleiri. Viðkomandi er þriggja barna faðir! Í morgun voru þau svo að tala um 3G símakynslóðina og komust að þeirri niðurstöðu að 3G símar væru hjálpartæki fyrir heyrnarlausa og þar af leiðandi myndu þau ekki vilja kaupa slíkan síma.

Ég hef aðeins eitt að segja. Hvernig væri að aka seglum eftir vindi og hleypa pabba gamla úr bátnum. Ef það virkar ekki er spurning um að leggja árar í bát, svona áður en glerin brjóta steinhúsið! Það eru aðrar leiðir til að mata krókinn en að bölva fólki með sandöskrum!

Kveðja: Reykjalín sem hvolfir öllu á botninn áður en öllu er á botninn hvolft!  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær færsla hjá þér

Katrín (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 14:52

2 identicon

Tilbreyting að heyra svona bráðungan mann eins og þig tala á þessum nótum. Ég hélt að pirringur af þessu tagi kæmi ekki nema með aldrinum - svona eins og með hrukkurnar. 

En svo veistu náttúrulega sonur sæll að pabbi er alltaf klár í bátinn.

sveinn Björnsson (IP-tala skráð) 19.9.2007 kl. 15:39

3 identicon

Ég er að bíða eftir næstu færslu!!

Katrín (IP-tala skráð) 23.9.2007 kl. 21:44

4 identicon

Þetta er rétt hjá þér.

Framan af hélt ég að menn væru svona iðnir við að herma eftir Bibbu á Brávallagötunni blessaðri, en því miður virðist staðreyndin sú að; eins og Botnleðju rataðist svo rétt á munn: Fólk er fífl. Sérstaklega útvarpsfólk.

Hjörtur Árnason (IP-tala skráð) 26.9.2007 kl. 13:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband