Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Tímamót

Umbreyting

Ég heiti Gunnar Reykjalín.

Ég er á ţessum aldri ţar sem mađur skilur viđ ábyrgđarleysi unglingsáranna og tekst á viđ alvarleika fullorđinsaldursins. Líf mitt hefur umturnast frá ţví ađ fletta í gegnum ómerktan auglýsingapóst og yfir í ţađ ađ taka ađeins viđ lokuđum umslögum međ nafninu mínu á. Svo virđist sem öll ţjónustufyrirtćki landsins viti hvađ ég heiti og hvar ég á heima. Ég er ekki lengur skotmark tilviljanakenndrar markađssetningar ţar sem nafnlausum smápésum er dreift í mannađar bréfalúgurnar heldur er líf mitt skođađ, metiđ og ég valinn sem tilvonandi viđskiptavinur.

Ég hef breyst úr ţví ađ komast upp međ ađ gefa stjórnmálum "puttann", horfa ekki á fréttir og skipta mér ekkert af ţví hver er ađ svindla á ţjóđinni hverju sinni. Núna sit ég límdur viđ skjáinn ađ reikna íbúđalán, skođa nćstu greiđslur námslánanna, les frambođslista stjórnmálaflokkanna og skođa ekki lengur bara myndirnar á mbl.is

Ég .. ég er ađ verđa gamall!

 

Kveđja

G. Reykjalín 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband