Fimmtudagur, 10. maí 2007
Á bleikum náttslopp!
Hæ
Þegar ég var aðeins yngri var það voðalegt sport að finna sér dömu í bænum, fara með henni heim til hennar og framkvæma hluti sem ekki væru við hæfi fólks á okkar aldri. Svo þegar við höfðum bæði lokið okkur af var málið að koma sér eins fljótt og hægt var út úr íbúð dömunnar. Við félagarnir sögðum svo hvorum öðrum sögur af því þegar við stukkum af svölum á þriðju hæð, klifruðum eftir þakrennum eða þurftum að hlaupa af okkur mannýga hunda.
Ég hélt um daginn að ég gæti endurupplifað þessa gömlu daga. Reynt að kynda upp í köldum glæðum með því að gera eitthvað sem ég gerði á mínum yngri árum. Ég eldaði góða máltíð handa konunni, keypti dýrt rauðvín og við áttum yndislega kvöldstund saman. Við nutum ásta fram eftir nóttu og ljóst var að þetta yrði nótt sem ekki myndi gleymast í bráð!
Það var þó ekki fyrr en morguninn eftir sem ég gerði mér grein fyrir hvaða vitleysu ég hafði gert! Málið er neflinlega það að eftir að konan var sofnuð skellti ég á mig náttsloppnum hennar, stökk út á svalir og klifraði niður í garð. Alsæll eftir sigur kvöldsins fattaði ég að ég var lykillaus þarna í bakgarðinum. Ég ákvað þá að leggja leið mína til foreldra minna og gista í þeirra íbúð þar sem þau voru erlendis. Íbúðin var hinumegin við leikskólann í hverfinu svo ég var ekki lengi að vippa mér þangað yfir. Ég vaknaði síðan snemma og ákvað að koma við í sjoppunni á leiðinni heim.
Svipurinn á afgreiðslukonunni þegar ég gekk inn í sjoppuna hefði getað sagt mér meira en ég var reiðubúinn að heyra. Í sjónvarpinu fyrir aftan afgreiðsluborðið var þulan að lesa upp tilkynningu: "Lögreglan í Reykjavík leitar karlmanns á þrítugsaldri. Maðurinn var eingöngu klæddur bleikum náttslopp og sást síðast til hans á leikskólalóð í miðbæ Reykjarvíkur".
Það var ekki fyrr en þrír fullklæddir lögregluþjónar ruddust inn í sjoppuna að ég áttaði mig á því hvað ég hafði gert rangt!
Eldri færslur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 12
- Sl. sólarhring: 12
- Sl. viku: 15
- Frá upphafi: 282
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Nýjustu færslurnar
- Sveitastelpan Halla Hrund sem varð "stelpa" Klaus Schwab ...
- Að slá í gegn
- Öll börnin sem fengu kíghósta og hettusótt voru bólusett!
- CELEANO -BÚAR: Sólkerfið CALEANO er í PLEIADES-STJÖRNUKERFINU og það er talið að þar búi mennskt og vinveitt fólk sem að er með bláan húðlit og kallast Celestes eða Blue
- YFIRLIT YFIR ÞAU SAMTÖK MENNSKRA OG ÓMENNSKRA GESTA / GEIMVERA SEM AÐ BÚIÐ ER AÐ UPPGÖTVA Í GEIMNUM:
Athugasemdir
Hehe, þessi er góð:) Meira af svona.
Herra Berg (IP-tala skráð) 10.5.2007 kl. 18:46
Hehe góð saga
Lolli (IP-tala skráð) 12.5.2007 kl. 22:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.